Freitag, 27. August 2010

Nýja landið

Jæja, ætli ég verði ekki að henda inn einu laufléttu bloggi. Ég er á lífi, enn þá allaveg. Hef það ljómandi fínt hérna. Yndislegt fólk, fallegt land og eðal búðir. Fullkominn þrenna!
Veðrið er búið að vera mjög gott, fyrir utan örfáa rigningadaga. En það er nú ekki svo slæmt, sérstaklega ekki þegar maður kemur frá kalda landinu.

Ég ætla ekki að segja ykkur frá öll eða hverjum einasta degi, enda efast ég um að nokkur maður myndi nenna að lesa svo langt blogg. Vildi bara láta vita af mér.

Ég fer alla daga til ferðamannaborgarinnar Lucern. En þar er sé sennilega bara enn einn túristinn. Tungumálaskólinn, sem ég er í núna áður en ég byrja í venjulegum skóla, er staðsettur í hjarta borgarinnar. Borgin er voðalega falleg. Nú er maður loksins kominn í siðmenninguna;)
Lestakerfið er náttúrlega bara æði. Get ferðast hvert sem ég vil hvenær sem er. Maður er fljótur að venjast því. Við Íslendingar klikkuðum agarlega á því að næla okkur ekki í eitt svona kerfi. Myndi gera lífið mun auðveldara.

Ég skellti mér með Christu og Naju í lautarferð í um 1000 m. hæð. Það er sennilega nýtt persónulegt met! ( Það er að segja fyrir utan allar flugferðirnar ).
Við ferðuðumst með skipi og svo vagni sem fór með okkur alla leið upp. Rigi held ég að þetta heit. Ofboðslega fallegt!
Læt þær örfáu myndir sem ég tók fylgja blogg ásamt nokkrum myndum frá Lucern.

http://sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-ash2/hs158.ash2/41237_424296214853_645229853_4605351_6798105_n.jpg
Ofboðslega fallegt á toppnum!

http://sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-snc4/hs421.snc4/46439_424296199853_645229853_4605350_7066619_n.jpg

Það var tekin harkan sex á þetta! .. að drepast úr lofthræðslu

http://sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-snc4/hs385.snc4/44840_424287564853_645229853_4605247_5145752_n.jpg

http://sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-snc4/hs385.snc4/44840_424287569853_645229853_4605248_7730411_n.jpg

http://sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-snc4/hs387.snc4/44979_424287609853_645229853_4605249_3175216_n.jpg

http://sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-snc4/hs367.snc4/44979_424287619853_645229853_4605251_3576421_n.jpg

Borgin, Lucern
http://sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-snc4/hs410.snc4/47355_424286704853_645229853_4605239_528277_n.jpg

http://sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-snc4/hs395.snc4/45831_424287039853_645229853_4605244_6055088_n.jpg

http://sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-ash2/hs202.ash2/46568_424286654853_645229853_4605236_7600927_n.jpg

Hef þetta ekki lengra í bili. Er kominn er með þvílíka ritstíflu, get ekki skrifað eitt einasta orð svo þetta verður að duga.

Ég sendi hlýja sumar strauma frá Sviss ( Ykkur veitir ekki af þeim þarna úti í kuldanum! )
Auf Wiedersehen!